Jan 16, 2019
Sölvi Tryggvason þurfti að þola alvarlegan heilsubrest fyrir
áratugi og hefur unnið sig í átt að bættri heilsu síðan þá.
Hann gaf á dögunum út bókina “Á eigin skinni” þar sem hann fer yfir
mjög víðtækar tilraunir á eigin hug og líkama til þess eins að líða
betur.
Mataræði, hreyfing, svefn, föstur, bætiefni, kuldaböð, hugleiðsla,
öndunaræfingar, tenging við náttúru, og snjallsíma- og skjánotkun
eru meðal viðfangsefni bókarinnar. Við áttum gott spjall um leiðir
til þess að vinna í sjálfum sér og að betri útgáfu að sjálfum sér.
Það vildi svo til að ég tók spjallið upp og ætla að deila því hér
með ykkur í þessum þætti.