Oct 3, 2018
Hvert var Katrín að stefna áður en CrossFit varð að hennar
atvinnu? Hvernig aftraði það henni að sjá strax góðan árangur í
sportinu og hverju þurfti að breyta þegar henni var ljóst, árið
2014, að hún hafi ekki komist á Heimsleikana í fyrsta skipti síðan
hún lagði CrossFit fyrir sig.
Ferlið sem Katrín fór í gegnum lýsti sér ekki einungis í fleiri og
lengri æfingum og bættri líkamlegri heilsu, Katrín og þjálfarinn
hennar eru bæði sammála um að ástæðan fyrir því að hún endaði tvö
ár í röð efst á palli með titilinn Fittest Woman on Earth er
einfaldlega hausinn á henni.