Oct 24, 2018
Eins og Emil segir sjálfur frá þá var hann örugglega ekki
félagslyndasti strákurinn í bekknum á sínum unglingsárum. Hann
drakk ekki, borðaði hollt, mætti sjálfur á aukaæfingar, lét ekki
sjá sig á böllum og pældi ekkert í stelpum.
Það virðist vera þema í gegnum feril Emils að þegar eitthvað gengur
ekki upp, eitthvað fór ekki eins og það átti að fara eða honum
langaði að færi þá var lausnin bara að leggja meira á sig.
Hvort sem það var að koma Hellas Verona frá C-Deildinni upp í
A-deildina á Ítalíu eða bíta í það súra epli að fá ekki að spila
með íslenska landsliðinu á EM og vera síðan valinn besti leikmaður
landsliðsins á HM tveimur árum seinna.